Á LÝSU mun AkureyrarAkademían í samstarfi við VIRK starfsendurhæfingu, Háskólann á Akureyri og Akureyrarbæ standa fyrir viðburðinum Kulnun er ekki einkamál!
Inga Dagný Eydal hjúkrunarfræðingur segir frá sinni reynslu af kulnun í erindinu Þegar streitan yfirtekur allt. Hildur Petra Friðriksdóttir ráðgjafi hjá VIRK fjallar um kulnun og starfsendurhæfingu og að lokum mun Hjördís Sigursteinsdóttir dósent við HA fjalla um niðurstöður rannsókna sinna á heilsu og líðan í lok vinnudags meðal starfsfólks sveitarfélaganna. Að loknum erindunum verður boðið upp á pallborð og umræður undir stjórn Karls Frímannssonar, fræðslustjóra Akureyrarbæjar.
Umræðan um streitu og kulnun í starfi hefur verið áberandi í íslenskum fjölmiðlum og víðar upp á síðkastið. Mikil streita getur haft alvarlegar neikvæðar afleiðingar og mikilvægt að sporna við fjarveru frá vinnu af völdum streitu og kulnunar.