Yfirskrift málþingsins var Kulnun er ekki einkamál.
Inga Dagný Eydal, hjúkrunarfræðingur, sagði frá sinni reynslu af kulnun og aðdraganda þess í áhrifaríku erindi. Inga hafði verið undir miklu vinnuálagi í langan tíma sem millistjórnandi í heilbrigðiskerfinu og við það bættust fyrri áföll og veikindi. Afleiðingar kulnunar eru mjög alvarlegar og lýsti Inga hvernig hún hefur nú þurft að aðlaga líf sitt að breyttum veruleika.
Hildur Petra Friðriksdóttir, ráðgjafi í starfsendurhæfingu hjá VIRK, fjallaði næst um kulnun og starfsendurhæfingu. Hildur fór yfir það hvað kulnun er og að oft sé aðdragandi kulnunar langur. Það sé því mikill ávinningur fólginn í því að grípa inn í áður en til kulnunar kemur.
Síðust til máls tók Hjördís Sigursteinsdóttir, dósent við HA. Hjördís hefur rannsakað heilsu og líðan meðal starfsfólks sveitafélaganna og sýna niðurstöður hennar meðal annars að allt of margir eru stressaðir í lok vinnudags eða finnst þeir útbrunnir. Hjördís sagði að vellíðan á vinnustað hefði áhrif á líðan utan vinnunnar en viðvarandi vinnutengd streita leiddi til kulnunar í starfi. Það væri því mikilvægt að skapa öruggan og eflandi vinnustað með góðum starfsaðstæðum.
Að erindum loknum sátu frummælendur í pallborði og stjórnaði Karl Frímannsson, fræðslustjóri Akureyrarbæjar, umræðum. Margir tóku til máls og var fjallað um málefnið frá ýmsum sjónarhornum. Mikil áhersla var á forvarnir og fræðslu innan vinnustaða um helstu einkenni sem geta leitt til kulnunar og hvernig vinnustaður á að skipuleggja vinnu fólks með tilliti til þátta eins og innra skipulag, jöfnun álags í starfsmannahópnum o.fl. Einnig var rætt um það samfélag sem við búum í þar sem við þurfum öll að vera vakandi fyrir okkar samstarfsfólki, hlúa að öðrum og hvetja fólk til að leita aðstoðar ef við sjáum merki um að einstaklingur sé að upplifa þætti eins og síþreytu, minnistap sem má rekja til streitu, magnleysi, félagskvíða o.fl.
AkureyrarAkademían þakkar samstarfsaðilum sínum, VIRK, Háskólanum á Akureyri og Akureyrarbæ, fyrir gott samstarf. Einnig þökkum við skipuleggjendum LÝSU fyrir að skapa þennan frábæra vettvang en síðast en ekki síst þökkum við þeim fjölmörgu sem komu á málþingið!
Að lokum látum við fylgja hér forvarnarheilræði Ingu Eydal: