Goðafoss - Þaðan sem leiðir liggja til allra átta

Goðafoss - Þaðan sem leiðir liggja til allra átta. Fyrirlestur Helgu A. Erlingsdóttur í salnum á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð, Vestursíðu 9, Akureyri, föstudaginn 6. september, kl. 13:30.

Fjallað verður í máli og myndum um Goðafoss og Fljótið, söguna, umhverfið og mannlífið í héraðinu.

Helga A. Erlingsdóttir er umhverfissinni og á að baki langan feril í sveitarstjórnarmálum.

Fyrirlesturinn er hluti af viðburðaröð AkureyrarAkademíunnar á þessu ári fyrir íbúa hjúkrunarheimilanna og aðra bæjarbúa. Norðurorka styrkir viðburðinn.

Öll hjartanlega velkomin!