Föstudaginn 28. apríl nk. verður Bryndís Fjóla Pétursdóttir, garðyrkjufræðingur og sjáandi, með fyrirlestur um nýsköpunarverkefnið Huldustígur í Lystigarðinum á Akureyri.
Bryndís Fjóla fjallar um huldufólkið og álfana sem búa í garðinum og á Íslandi almennt og mikilvægi samtalsins við náttúruna í fortíð og á okkar tímum.
Fyrirlesturinn er haldinn í salnum á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð, að Vestursíðu 9, Akureyri, og hefst hann kl. 13:30.
Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröð AkureyrarAkademíunnar og hjúkrunarheimilanna á Akureyri á þessu ári fyrir íbúa heimilanna og aðra bæjarbúa.
Fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis.
Menningar- og viðurkenningasjóður KEA styrkir fyrirlestraröðina.