Verðlaunin eru veitt fyrirtækjum sem bjóða upp á athyglisverðar nýjungar. Arna Björg Bjarnadóttir, sagnfræðingur og menningarmiðlari, vann að undirbúningi Óbyggðaseturs í AkureyrarAkademíunni og óskum við henni og Steingrími Karlssyni, kvikmyndagerðarmanni og ferðaþjónustubónda, til hamingju með viðurkenninguna.