Opið hús hjá AkureyrarAkademíunni

Opið hús hjá AkureyrarAkademíunni. Í tilefni af Akureyrarvöku verður AkureyrarAkademían með opið hús í húsakynnum sínum í verslunarmiðstöðinni að Sunnuhlíð 12, laugardaginn 31. ágúst, kl. 14:00-16:00.
 
Þá ætlum við að kynna starfsemina og sýna aðstöðuna hjá okkur. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Öll velkomin í heimsókn.
 
AkureyrarAkademían er þverfaglegt samfélag fólks sem vinnur að fjölbreyttum og skapandi verkefnum. Við bjóðum upp á góða aðstöðu, hvetjandi umhverfi og skemmtilegan starfsanda.
 
Við hlökkum til að sjá ykkur!