Opinn fundur um vísindasamfélagið á Akureyri þann 17. maí

Á fundinum verður sjónum beint að framþróun vísindasamfélagsins á Akureyri og hvernig megi efla það ennfrekar.

Inngangserindi halda annars vegar Margrét Guðmundsdóttir, sagnfræðingur, um 15 ára rannsóknarsögu AkureyrarAkademíunnar og hins vegar Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, um umhverfi og aðstöðu fyrir rannsóknir og fræðastarf á Akureyri.

Eftir erindin fara fram umræður um það sem við erum nú þegar með sem tryggja þarf áfram og hvernig megi efla Akureyri sem eftirsóknarverðan kost fyrir vísinda- og fræðafólk til að starfa að sínum rannsóknum.

Hvað vantar upp á? Hvað getum við gert saman til að búa í haginn fyrir öflugt vísindalíf á Akureyri?

Allir velkomnir!