Stelpur, konur og kerlingar í ljóðum, lausu máli og söng

Stelpur, konur og kerlingar í ljóðum, lausu máli og söng. Dagskrá Þórarins Hjartarsonar í salnum á hjúkrunarheimilinu Hlíð, Austurbyggð 17, Akureyri, föstudaginn 23. ágúst, kl. 13:30. Þórarinn er stálsmiður, kvæðamaður, trúbador og eftirlaunaþegi.

Efni dagskrárinnar verður ýmist um kvenfólk eða eftir kvenfólk, og frekar á léttum nótum heldur en hitt. Af nógu er taka þegar kemur að vísum um þetta efni:

Fyrsti eiginmaður orti:

Læt ég fyrir ljósan dag

ljós um húsið skína.

Ekki til að yrkja brag

eða kippa neinu í lag

heldur til að horfa á konu mína.

Annar hafði það svona:

Vondslega hefur oss veröldin blekkt

vilja og rænu svift mig,

Hefði ég betur hana þekkt

hefði ég aldrei gift mig.

Dagskráin er hluti af viðburðaröð AkureyrarAkademíunnar á þessu ári fyrir íbúa hjúkrunarheimilanna og aðra bæjarbúa. Menningar- og viðurkenningasjóður KEA styrkir viðburðinn.

Öll hjartanlega velkomin!