Þrír félagar AkureyrarAkademíunnar fá verkefnastyrki frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra.
Fyrir skömmu var tilkynnt um þau verkefni sem hlutu styrk úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra fyrir árið 2025.
Það er ánægjulegt að segja frá því að meðal styrkþega eru þrír félagar AkAk: Bryndís Fjóla Pétursdóttir, Pétur Guðjónsson og Þórhallur S. Bjarnason. Verkefni Þórhalls er á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og Bryndísar Fjólu og Péturs á sviði menningar, og hafa þau unnið að mótun verkefnanna í húsnæði AkAk.
Við óskum Bryndísi Fjólu, Pétri og Þórhalli innilega til hamingju með verkefnastyrkina.
Hér er nánari lýsing á styrktarverkefnunum:
Bryndís Fjóla Pétursdóttir: Alþjóðlega ráðstefnan, Tales of the Nature Spirits/Saga náttúruvættanna
Verkefnið felur í sér alþjóðlega ráðstefnu sem verður haldin 31. maí 2025 í Hamraborg í Menningarhúsinu Hofi og verður henni fylgt eftir með vinnustofu þann 1. júní í hátíðarsal Háskólans á Akureyri. Ráðstefnan fer fram á ensku og er markmið hennar að auðga skilning okkar, þvert á þjóðerni og tungumál, á þeim óáþreifanlega menningararfi er snýr að álfum, huldufólki og öðrum náttúruvættum og um leið að skapa aukin og ný tækifæri á sviði samstarfs, rannsókna, ferðaþjónustu, menningar og lista, auk útflutnings á þekkingu okkar og skynjun á landi og þjóð.
Pétur Guðjónsson: Vorsýning Leiklistarskóla Draumaleikhússins
Leiklistarskóli Draumaleikhússins er á sinni annarri önn vorið 2025. Markmið Draumaleikhússins er að verða vettvangur fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára, bæði aðilum í framhaldsskóla, eftir framhaldsskóla eða utan hans. Einnig fyrir aðra aldurshópa með styttri sérnámskeiðum. Markmiðið er að sýna afrakstur hverrar annar í lok hennar. Það er mikilvægt að almenningur fái að njóta afrakstursins og hluti af uppbyggingu skólans, er að sýna leiksýningu í lok annar.
Þórhallur S. Bjarnason: Vistvænn orkuberi úr hreinum auðlindum
Nýsköpunarfyrirtækið E-Valor ehf. er að þróa afurðavinnslu með einkaleyfisverndaðri tækni sem nýtir raforku, varma og ferskvatn til framleiðslu á vistvænu og hreinu vetni, sem nýtt verður fyrir kolefnisfrí orkuskipti í samgöngum á sjó og landi. Afurðavinnslan byggir á einkaleyfisvernduðum tæknilausnum sem hafa verið þróaðar í um tuttugu ár. Starfsemin verður skipulögð og byggð upp í samvinnu við opinbera aðila og starfandi fyrirtæki með áherslu á hreinorkuskipti í samgöngum.